Það borgar sig að kynna sér vel hvað bankarnir bjóða námsmönnum uppá!

Arion Banki

Framfærslulán

Arion banki býður námsmönnum uppá framfærslulán sem er í formi yfirdráttarheimildar á sérstökum framfærslureikningi. Þar millifærir þú af framfærsluláninu í Netbankanum og skammtar þér þannig framfærslu yfir önnina þangað til að LÍN greiðir út lánið eftir að þú hefur sýnt fram á námsárangur. Vextirnir á þessu láni eru hagstæðari en á venjulegum yfirdrætti.

Þú getur stofnað framfærslureikning í næsta útibúi um leið og þú hefur fengið lánsáætlun frá Lín. Eftir það getur þú auðveldlega sótt um framfærslu fyrir hverja önn í gegnum Netbankann. Hægt er að sækja um að fá allt að 100% framfærslulán fyrir hverja önn.

 

Ef þú velur Arion banka getur þú sótt um allt að 300.000kr lán til þess að kaupa tölvu ef þú þarft. 

Kort & tilboð 

Hjá Arion geturðu fengið bæði debet- og kredit kort. Stúdenta debetkortið veitir þér ódýrari færslugjöld en á öðrum debetkortum. Kredit kortið sem þér stendur til boða er Bláa Kortið sem er sérstaklega sniðið að námsmönnum. Það tengist fríðinda- og viðburðakerfi Hringtorgs og gefur þér alls konar tilboð og forgang á alla þá viðburði sem Hringtorg býður upp á.

Dæmi um það sem Hringtorg hefur uppá að bjóða: 

  • Ódýrari bíómiða í Sambíóunum.
  • Afslátt af bensíni og öllu viðhaldstengdu fyrir bílinn.
  • Sértilboð og afslætti á fullt af veitingastöðum.
  • Ýmislegt fyrir ræktina, heilsunu og sál á tilboði.
  • Reglulega afslætti og sértilboð af fullt af viðburðum og tónleikum í hverjum mánuði.

Hér geturðu séð allt sem Hringtorg býður uppá.

 

Tengt efni:

)